|
Nauðsynlegt að skoða fyrir DK ferð
|
27.01.2009 19:42:17 / jora
Sorry, en eins og þið hafið sennilega tekið eftir þá er ekki mikið að gerast á þessari síðu. Um er að kenna facebook, nú nennir enginn að skrifa eða lesa gamaldags heimasíður...en þessi síða segir..."minn tími mun koma". kveðja
»
01.01.2009 15:26:32 / jora
Þá er komið það herrans ár 2009. Árið byrjar með tiltekt, bæði úti og inni, greinilegt að það var mikið fjör hérna í gærkvöldi og nótt. Tveir fullir ruslapokar af flugeldarestum liggja í innkeyrslunni og bíða þess að endurvinnslan opni á morgun. Skothríðin gekk slysalaust fyrir sig sem betur fer, veðrið var frábært og góður félagsskapur skemmdi ekki fyrir. Salka, Bæbi og börn voru hérna hjá okkur ásamt Pétri og Helgu (foreldrar Sölku). Við horfðum að sjálfsögðu á annálana og skaupið og verð ég nú bara að viðurkenna að mér fannst skaupið barasta nokkuð gott, fjármálaumræða kvað  Jói.
»
24.12.2008 11:26:02 / jora
Við viljum óska þér og þínum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári 2009. > >
Hér í
Odense gengur lífið sinn vanagang þrátt fyrir þónokkuð krepputal, og er allt
gott að frétta af okkur fjölskyldumeðlimunum fjórum og kettinum Vaski. > >
Ragna
er enn að stúdera börn og hinar ýmsu kenningar tengdar uppeldi og hegðun
þeirra. Það er bara loka önnin eftir,
sem reyndar er þéttsetin prófum og verkefnaskilum, en auðvitað reddast þetta
allt, vonum við. /> > >
Jói ákveðinn
í að vera á sínum vinnustað þar til honum lokar, 30 júní á næsta ári. En þá flytur fyrirtækið frá Odense. Við verðum því bæði í atvinnuleit um svipað
leyti, næstkomandi vor, sem er ekki það mest spennandi en mun að sjálfsögðu
ganga upp. > >
Og
börnin, jú þau segjast hafa það gott og trúum við ekki öðru en að það sé satt
og rétt ;-) Auðvitað er öðru hvoru
kvartað yfir því hversu mikið skólinn tekur af ”frítímanum” þeirra, en þeim
gengur báðum vel í skólanum og er Hrund ákveðin í því að standa sig vel á þessu
síðasta skólaári sínu í grunnskóla, eins og hingað til. />
Hún er
að vinna með skólanum í blómabúð hérna í hverfinu okkar og er búið að vera
mikið að gera í desember. Hún á að vinna
bæði á aðfanga- og gamlársdag, sem er ekki það mest spennandi en gefur aur og
svo verður að sjálfsögðu dekrað við hana þegar hún kemur heim. > >
Birkir
er enn í haldboltanum og líkar vel. Hann
bíður núna spenntur eftir að komast á Snekup, sem er tveggja daga handboltamót
hérna á Fjóni, milli jóla og nýárs, það verður gist í svefnpokaplássi með
tilheyrandi fjöri. > >
Kötturinn
Vaskur dafnar vel og er kominn í vetrar pelsinn sinn. Honum finnst ekkert betra en að stela sætunum
okkar og helst að taka hálfann stofusófann undir sig.
> >

Jólakveðja,
Ragna – Jóhann – Hrund – Birkir....................og Vaskur.
/>
»
09.11.2008 19:46:13 / jora
»
30.10.2008 18:57:59 / jora
Í gær gerðist sá merkis atburður að okkar fíni skjár (ekki flatur) gafst upp með smelli og reyk. Skjáinn, sem er af Grundig fjölskyldunni kominn, keyptum við notaðann fyrir ca 3 árum þegar hinn Grundig skjárinn okkar endaði ferilinn með reyk og neystaflugi. Sem betur fer þá rétt náði húsbóndinn að klára Blues Brothers 2000 áður en ósköpinn dundu yfir, frábær mynd sem kemur manni í gott skap líkt og orginal Blues Brothers...mæli með þeim. Sjónvarpsmissirinn er okkur þónokkuð áfall því nú þurfum við að takast á við mikinn valkvíða...á að kaupa flatskjá (og þá hvaða tegund, stærð, verðflokk osfr.) eða á maður bara að kaupa sér annan notaðann sjónvarpshlunk fyrir slik, því nóg er framboðið af þeim. Ekki bætir úr að íslendingabúðin Merlin fór á hausinn í vikunni og því ekki hægt að verlsa "íslenskt"  Auðvitað ætti þetta ekki að vera eitthvað stórmál en það er það nú samt, því auðvitað er ekki nóg að kaupa sér þynnildi til að hengja upp á vegg, það þarf jú líka að fjárfesta í hljómkerfi og digital móttakara svo upplifunin verði nú hámörkuð, og ekki væri nú verra að skipta um gluggatjöld og mála stofuna í leiðinni. Svo er sófinn alls ekki nógu þægilegur né stór þegar fjölskyldan sameinast á síðkvöldum fyrir framan væntanlegann nýjasta "fjölskyldumeðliminn", þetta kallar því á miklar pælingar og stórfelld peningaútgjöld.  Sennilega væri bara best að versla þetta allt á Íslandi, notfæra sér lasleika krónunnar og fá svo tax free ofan á allt...eini mínusinn við þetta plan er þó að maður yrði að leigja sér 20 feta gám fyrir innkaupin og þá væri lítill gróði eftir. Úfff þetta krefst mikilla vangaveltna
»
09.10.2008 19:09:14 / jora
Það er mikið fjallað um ófarir íslendinga í peningamálum hérna í danmörkunni þessa dagana. Það er næstum sama við hvern maður talar, allir bara VERÐA aðeins að minnast á gráðugu íslendingana sem fóru aðeins of hratt yfir og enduðu á hausnum. Og margir brosa út í bæði, því þó að það sé krepputal í danaveldi þá er alltaf hægt að hugga sig við að fjárans íslendingarnir sem meðal annars höfðu af þeim Magasín, Merlin og stóran hlut í B&O eru núna að missa þetta allt úr úr höndunum og ísland að verða rússnersk nýlenda  Ég segi þeim nú bara að þetta reddist, það er jú okkar mottó...og ætli þetta reddist ekki eins og allt annað og innan skamms verða þessir blessuðu "auðmenn íslands" aftur komnir á fullt og almenningur búinn að gleyma þessu öllu saman og mun aftur taka þátt í brjálæðinu að fullu hjarta, því ekki má maður vera minni maður en Nonni nágranni sem einmitt var að fá nýja sérpantaða lúxus jeppann sinn í innkeyrsluna, framan við 400 fermetra einbýlishúsið sitt.  Það er bara vonandi að einhverjir átti sig á því í þessu krepputali að peningar eru ekki allt, þó auðvitað sé ferlega næs að hafa einhverjar krónur í vasanum. Annars er allt í góðu hérna í Odense, rokkarar og inflytjendur berjast um pláss í fíkniefnaheiminum, og sem betur fer skjóta og lemja þeir mest hvern annan  , en við fjölskyldan í Karenvænget gleðjumst yfir lækkandi benzínverði, bjór á ferlega góðu tilboði og því að við erum að fá fullt hús og útihús af góðum gestum um helgina. p.s. það er ljós þarna úti....Decode hækkaði á mörkuðum í dag um ca. 35%...en 35% af næstum engu er kannski ekki svo mikið, en allavegana allt á uppleið....jess
»
24.09.2008 16:51:46 / jora
Loksins loksins hafði sá gamli sig upp úr fletinu og mætti á æfingu hjá hjólklúbbnum í Næsby og var það fjallahjólið sem fékk að viðra sig. Eftirfarandi klausa af heimasíðu klúbbsins er þessu merka framtaki til sönnunar: Søndag 21 sept. 9 mand og Stine var mødt op og klar til Mountainbike søndag morgen i super fint vejr 18-20 grader så kan det ikke blive bedre cykelvejr. Turen gik til Langesøskoven under kyndig ledelse af vores DGI instruktører. Den positive udvikling vi som cykelklub er inde i er rygtes helt til Island. Johann Leosson mødte op og kørte med. Og han giver den max GAS skal jeg hilse at sige fra Kjeld –X Johann har efterfølgende meldt sig ind og bliver medlem nummer 40. Det er super KANON at vi er vokset med 18 medlemmer i 2008 og det skyldes ikke mindst Mountainbike. Og den gode måde vi kan køre sammen på uanset niveau. Tak til Torben, Kjeld og Martin for en fed og godt tilrettelagt tur. Don Cube
Það var reyndar nokkuð skondið að fyrsti maður sem spjallaði við á æfingunni var nýkominn frá íslandi og var svo hrifinn af landinu að Grænlandsferð sem hann og frúin ætluðu í næsta sumar er frestað, þau ætla aftur til Íslands, hann ætlar að prufa að ríða hjólhesti þar, en frúin ætlar að ríða "en Islænding" (þá erum við að tala um íslenska hestinn sko).
Annars var nóg að gera hjá familíunni um sl. helgi. Birkir var allan laugardaginn í skóginum að leika rollespil, mér skilst að hann sé kominn í fasta vinnu á "kránni", byrjar vel strákurinn, ja hann er allavegana réttu megin við barborðið.
Hrund var að vinna á laugardeginum, svo var auðvitað partí föstudags og laugardagskvöld, það má ekki minna vera. Við "gömlu" stússuðumst í garðinum og innivið. Gestahúsið fékk á sig lit...ja allavegana framhliðarnar (svona dálítill Hollywood stíll á þessu) því málningin kláraðist.
Birkir var síðan farinn út úr húsi fyrir kl. 8 á sunnudagsmorgninum. Hann var að taka þátt í handboltamóti hérna á Fjóni, engin medalía í þetta skiptið en T-bolur og hann var sáttur. Ragna var að vinna á Sunnudeginum, fjölskyldudagur á leikskólanum og eins og fyrr sagði þá fór karlinn út að hjóla. Seinnipart sunnudagsins kíktum við svo á Sölku og Bæba og fengum nýbakað og öl úti í sólinni, bara dejligt
bæjó
»
19.09.2008 15:18:14 / jora
Ferlegt á svona annars fínum föstudegi að maður skuli lækka í launum um fleiri þúsund ísl.krónur...alsaklaus og verðskulda það á engan hátt. En þar sem íslenska krónan rétti aðeins úr kútnum frá því í gær, þá lækkuðu nemalaunin úr 181.500.- ísl.kr í 176.450.- ísl.kr á einum sólahring, hvers á maður að gjalda  ? Annars á maður ekki að gera grín að þessu, ekki síst þar sem ástand krónunnar bitnar jú mest á okkur (eða ykkur á íslandinu góða) venjulegu Jón og Gunnunum. En gleðjumst og höldum gleðilegan pizzudag og góða helgi allir saman
»
17.09.2008 18:23:33 / jora
Hó Hó Hó...sorry hvað það er langt síðan við höfum látið vita af okkur en vegna tölvubilunar (já alveg satt, móðurborðið bara klikkaði) þá duttu út nokkrar vikur í skrifum...og svo má ekki gleyma FACE-BOOK-tímaþjófnum...þannig að gamaldags heimasíður eins og þessi bara verða útundan...en við lofum bót og betrun, so stay tuned
»
24.08.2008 10:48:06 / jora
Silfur um háls fer ótrúlega vel með svo mörgu...hvort sem maður er frjálslega klæddur í gallabuxur og bol, sundskýlu, nú eða í jakkafötum  Ég vona bara að einhver vekji athygli STRÁKANNA OKKAR á því að taka silfrið niður þegar þeir fara í sturtu næst á íslandi...nema þeir vilji náttúrulega að silfrið taki smá lit og fari alveg óvart að líkjast gulli 
»
22.08.2008 14:20:02 / jora
JESS, JESS, JAHÚÚ OG FRÁBÆRT  Ef þið hafið ekki verið að fylgjast með því þá vann Kína keppnina í dýfingum af 3 metrapalli í kvennaflokki  Nei annars það var ekki það sem allt snerist um í dag...heldur er það blessaður handboltinn og þar sem ég laumaðist til að fylgjast með beinni lýsingu á netinu meðan ég átti að vera að vinna...og gat ekki haldið aftur af mér að monnta mig, þá komst ég að því að danir voru almennt að krossa fingur fyrir ísland, og það virkaði, frábært...og fínast afsökun fyrir því að fá sér kannski smá malt í kvöld. Góða helgi
»
21.08.2008 16:48:09 / jora
Já Birkir á afmæli í dag, loksins, hann er búinn að bíða frekar lengi eftir deginum, en þetta hafðist. Við fórum á Mamas í dag og fengum okkur pizzur. Ragna varð síðan að rjúka á starfsmannafund og Birkir á handboltaæfingu...vonandi bara að pizzan haldist niðri. Það verður síðan íslendingakaffiboð á sunnudaginn með kaffi, kökum og pönnsum. P.S. Moldarhaugurinn er alveg að hverfa   
»
20.08.2008 15:52:20 / jora
Loksins erum við aftur fjögur í heimili...+ Vaskur auðvitað. Birkir skilaði sér heim, seint á sunnudagskvöldið var, eftir skemmtilega og viðburðaríka dvöl á íslandinu góða, hjá hinum ýmsu ættingjum. Hann var hæst ánægður með dvölina, svo við sendum stórt takk til ykkar allra sem önnuðust strákinn í þessar 3 vikur og Gústa og Þóru fyrir að ferðast með hann. Hrund kom líka heim á sunnudaginn eftir að hafa verið á markaði í Korskro frá því á föstudeginum. Þetta var síðasti markaðurinn sem hún fer á í sumar. Salan gekk ekki sem best, en af myndum að dæma þá skemmtu þær vinkonurnar sér vel. Ragna er búin að vera með kvef og leiðindi undanfarið. Á sunnu-mánudag var hún þegjandi hás en eftir læknisheimsókn þá fékk hún að vita að það væri ekkert að henni  Skrítið að maður geti verið svona, en samt ekkert að manni, mig er farið að gruna að hana vanti bara athygli   nei nei þetta var nú bara smá grín. Hún er skárri í dag...þó það nú væri úr því að það er "ekkert" að henni. Um daginn þá harkaði ég af mér og greip í skóflu og mokaði burtu blómabeðinu sem var undir herbergisgluggum krakkanna. Þar sem þetta var bara svona skyndibrjálæði þá var ég ekki með kerru til að moka moldinni á...og sturtaði þessu því bara í haug við innkeyrsluna, ég ætlaði svo bara að njóta þess síðar að fá að moka moldinni aftur, sko upp á kerru, já og enn aftur, af kerrunni í moldargáminn í endurvinnslustöðinni. En hversu heppinn getur maður orðið???  Jú á mánudaginn þegar ég var að slá grasið, þá kemur til mín kona og spyr hvað ég ætli að gera við þessa mold, ég sagði henni það og þá spurði hún hvort ekki væri í lagi að hún og maðurinn hennar kæmu og fengju að nota hana!!! Þau hafa síðan komið 2 daga í röð og tekið eina kerrufylli hvorn daginn, þannig að núna er bara tæplega helmingurinn eftir  Nú bíð ég bara eftir því að einhver banki uppá með afgangs kerru hlass af sandi til að fylla í holuna  Svo er það aðalfréttin í dag þann 20 ágúst 2008...hún mamma (Gerða) er 60 ára í dag, til hamingju með daginn elsku mamma, amma og tengdó  Birkir á svo afmæli á morgun, og er þónokkuð spenntur, stefnan tekin á að borða snemma í bænum og síðan ætlar hann á handboltaæfingu. Það á að æfa 2 sinnum í viku og spila leiki um helgar í vetur segir hann, vonandi bara að áhuginn endist. Kveðja, Jói og co.
»
08.08.2008 14:06:09 / jora
Takk Dana  En talandi um aukakóló, þá hefur sárlega vantað fjölskylduafmæli í kringum okkur, með tilheyrandi kræsingum. Þetta er bara eitt af því sem allavegana ég (Jó-inn) sakna eftir að hafa svikið lit og stokkið af skerinu (við erum bara að víkka sjóndeildarhringinn, úff spekin). Eftir að við fluttum hingað út þá hefur það aðallega lent á Sölku/Bæba og Gústa/Þóru að bjóða okkur í afmæli með jöfnu millibili. Það var t.d. mjög slæmt að missa Kristínu og Kiddó heim til Íslands...ekki síst á þeim tímapunkti þegar þau voru nýbúin að fjölga í fjölskyldunni og því komnir 5 afmælisdagar á ári á þeim bænum og Kristín alveg snilldar bakari  Reyndar var kökuleysið að hrjá mig svo mikið á tímabili að ég var alvarlega farinn að spá í það að opna uppskriftabók og reyna gera eitthvað í málinu, nú eða að fynna einhvern veitingastað í nágrenninu sem væri með kökuhlaðborð um helgar.  Ég hætti við fyrra atriðið af heilsufarsástæðum, ég færi þá að borða hnallþórur með morgunmatnum, og seinna atriðið leist mér ekki nógu vel á því margt af því sem ég hef séð á dönskum kökuborðum/bakaríum er bara alls ekki freistandi að setja upp í sig. En nú hefur staðan aðeins lagast eftir að Dana og Gústi eru flutt hingað út til okkar ásamt Ástrósu og Stefáni = 4 afmælisdagar  Ekki var svo verra að þau skyldu ná að flytja rétt fyrir afmælið hennar Dönu...þann 2 ágúst og við gátum gert okkur upp ástæðu til að heimsækja þau einmitt þann dag  . Nú í stuttu máli þá lofar framhaldið góðu, því ekki var boðið upp á neitt þurrt hrökkkex á þeim bænum Ég má svo ekki gleyma henni Rögnu minni, hún linar þjáningar mína með alveg súper bakstri nokkuð reglulega...og sem betur fer ekki of oft  Eins og ég skrifaði í gær, þá ringdi ekkert smá í gær. Ég var með frekar slæmann móral yfir hjólatúrsleysinu og .... Þeir sem vilja geta svo hætt að lesa hérna....því nú heldur monntið áfram........eftir að hafa snúist í marga hringi hérna innandyra þá skellti ég mér út að hlaupa á milli regnskúra. það voru rúmar 20 gráður og logn þannig að ég ákvað bara að hlaupa á stuttbuxum og bol, þetta var alveg frábært því auðvitað fór að hellirigna (hálf volgir regndropar) með þrumum og eldingum og það var gjörsamlega enginn á ferðinni og fékk ég fyrst skíringuna á því í dag í vinnuni...."ertu eitthvað klikk, maður heldur sig innandyra í svona veðri, fólk hefur drepist af því að fá í sig eldingu  " Æ maður er bara fávís útlendingur...nú eða það sem hljómar betur..."Ég kem frá Íslandi, ég læt ekki svona smáræði stoppa mig, og svo fynnst mér rigningin góð, tra ra rallala" Góða helgi, Jói og co.
»
07.08.2008 16:22:24 / jora
Allt sem ég var að reyna að koma frá mér í síðasta bloggi mínu, heyrði ég Megas syngja í dag..."svo skal böl bæta...að benda á eitthvað annað"  Í dag var svo dagurinn sem Næsby-Cykelmotion http://www.n-i-f.dk/cykelmotion/velkommen-cykelmotion.htm átti að fá að njóta samveru minnar. Það er búið að taka mig 5 ár að koma mér á æfingu hjá þeim. Í fyrra þegar aukakílóið (ath. eintala og mjög teygjanlegt hugtak)  var að pirra mig og ég harðákveðinn að mæta...voru þeir farnir í sumarfrí  og núna í dag byrjar svo að rigna þegar ég var að klára að pumpa í dekkin, og þó rigning sé ok þá er svona hellidemburigning ásamt þrumum, ekkert skemmtileg til að hjóla einhverja 2-3 tíma í  Geri aðra tilraun um helgina, þá fara þeir á fjallahjólum. Hrund var að fara í dag á næsta markað, sem er í Ringsted á Sjálandi. Hún var nú ekki alveg að nenna þessu, varla búin að ná sér eftir viku útileguna á Langelandi. Við gömlu erum því aftur ein ásamt Vaski í kotinu. Ragna er byrjuð í praktík og auðvitað að standa sig eins og Super-pædagog. Jæja ég læt þetta nægja í bili, ég var nefnilega búinn að skrifa miklu lengri og skemmtilegri pistil núna áðan, en með ótrúlegri snilld, þá tókst mér að eyða öllum þeim texta  svo þetta verður bara að duga, góða helgi allri saman.
»
Síður: 1 2 3 ... 9
|
|